Ég held að þetta sé í fjórða skiptið sem ég kem til Íslands og mér finnst það alltaf jafn frábært,“ segir finnski stórleikstjórinn Mika Kaurismäki. Hann var staddur hér á landi í vikunni í tilefni frumsýningar á kvikmyndinni The Grump: In Search of an Escort.
„Ég kom hingað fyrst á kvikmyndahátíð á níunda áratugnum. Þá kynntist ég Friðriki Þór og fleira kvikmyndagerðarfólki. Svo þegar ég kom í annað skipti, á níunda áratugnum, þá kynntist ég Ingvari,“ segir Mika. Þar á hann við kvikmyndaframleiðandann Ingvar Þórðarson en hann er einn framleiðenda The Grump.
„Í þessari ferð fór ég ásamt fleira fólki á Kaffibarinn og þar var Ingvar á bak við barinn, var einn eigendanna. Þarna var fullt af fólki og mjög gaman,“ segir Mika. Hann og Ingvar hafa síðan unnið að ýmsum verkefnum saman og eru góðir vinir.
„Ég kalla hann son minn, það er alveg nægur aldursmunur á okkur til þess,“ segir Mika kíminn.
Fjölmargar kvikmyndir
Grump hefur fengið afar jákvæð viðbrögð eftir að hún var frumsýnd fyrir fullu húsi í Bíó Paradís í vikunni. Mika segir húmor Íslendinga og Finna að mörgu leyti líkan, það geti útskýrt vinsældirnar. „Ég held að við séum lík að mörgu leyti. Sérstaklega húmorinn. Kannski er það af því við erum að einhverju leyti bæði einangruð. Tungumál Íslendinga og Finna eru til dæmis ólík hinum skandinavísku tungumálunum,“ segir hann.
„Maður sér það oft á norrænum kvikmyndahátíðum að Finnar og Íslendingar hópast saman.“

Mika hefur framleitt, skrifað og leikstýrt tugum kvikmynda og er afar mikils metinn í Finnlandi. Hann og bróðir hans, Aki Kaurismäki, vinna einnig mikið saman og hafa þeir bræður komið að um fimmtungi kvikmynda sem gefnar hafa verið út í Finnlandi frá árinu 1980.
Mika stefndi þó ekki alltaf að því að vinna við kvikmyndir. Hann vann á tímabili sem húsamálari og lærði síðar arkitektúr í Tækniháskólanum í München.
„Það var erfitt að komast inn, ég var mjög ánægður með að hafa tekist það og fannst mjög gaman að vera þarna. Við hliðina á arkitektúrskólanum var hins vegar kvikmyndaskóli sem ég labbaði fram hjá á hverjum degi og ég var mjög áhugasamur um kvikmyndir, horfði á tvær kvikmyndir á hverjum degi, svo einn daginn ákvað ég bara að fara inn,“ segir Mika.
Við hliðina á arkitektúrskólanum var hins vegar kvikmyndaskóli sem ég labbaði fram hjá á hverjum degi og ég var mjög áhugasamur um kvikmyndir, horfði á tvær kvikmyndir á hverjum degi, svo einn daginn ákvað ég bara að fara inn.
„Það var enn erfiðara að komast inn í kvikmyndaskólann en það var að komast inn í Tækniháskólann og ég bjóst alls ekki við því að ég kæmist inn, svo það kom mér skemmtilega á óvart þegar ég var einn af þeim 30 sem komust inn. Það voru nefnilega 7.000 sem sóttu um,“ segir hann.
Bjó undir Jesú
Mika fæddist í Helsinki en ólst upp í finnskum smábæ, hann flutti svo til Þýskalands þar sem hann menntaði sig en síðar fór hann á kvikmyndahátíð í Brasilíu. „Ég ætlaði bara að vera í eina viku en var í 20 eða 30 ár,“ segir hann.
„Um leið og ég kom til Brasilíu áttaði ég mig á því að mig langaði að ferðast um landið og svo bara ílengdist ég,“ segir hann.
„Þú hefur séð styttuna af Jesú Kristi í Rio De Janeiro er það ekki? Ég keypti mér hús undir hendinni á honum, bara undir handarkrikanum á Jesú. Á myndum af styttunni og póstkortum sést alltaf í húsið mitt,“ segir hann.
„Brasilía er svo stór og Ríó er algjör suðupottur. Þar eru ýmis félagslega vandamál og mikil stéttaskipting en fólkið er svo vingjarnlegt. Margir spyrja mig að því hvort það sé ekki hættulegt að vera þar, það getur auðvitað verið það ef þú ert á röngum stað á röngum tíma. En meirihluti fólks er heiðarlegur og ég þekki landið vel,“ segir Mika.
Ég keypti mér hús undir hendinni á honum, bara undir handarkrikanum á Jesú. Á myndum af styttunni og póstkortum sést alltaf í húsið mitt.
Fann ástina
„Það héldu margir að ég hefði elt konu til Brasilíu en það var ekki þannig. Þar kynntist ég hins vegar konunni minni, hún er frá El Salvador en þar bjuggum við í nokkur ár,“ segir Mika en hann býr nú ásamt fjölskyldu sinni í Finnlandi.
„Mig langaði mikið að hafa þau með mér hér á Íslandi en þetta er svo stutt stopp núna,“ segir Mika. Hann kom til Íslands á þriðjudag og fór aftur til Finnlands í gær þar sem nýjasta mynd hans var frumsýnd, heimildarmynd um finnsku rokkhljómsveitina Hassisen Kone.
„Já, það er búið að vera skemmtilegt og mér finnst mjög gaman að gera heimildarmyndir og ég hef mikinn áhuga á tónlist,“ segir Mika, sem sjálfur spilar á trommur. „Ég fór aldrei í tónlistarskóla heldur spilaði bara inni í bílskúr. Svo hef ég spilaði í alls konar hljómsveitum og strákarnir í Hassisen Kone eru góðir vinir mínir.“

The Grump: In Search of an Escort er þriðja myndin um gamlan nöldursegg sem lendir í hinum ýmsu ævintýrum og hefur myndin notið mikilla vinsælda víða. „Já, þessi mynd var á toppnum í Finnlandi yfir aðsóknarmestu innlendu myndina, eina myndin sem toppaði okkur var Top Gun,“ segir Mika.
„Finnar elska þessar myndir og allir geta tengt við karakterana. Það gæti vel farið svo að ég myndi leikstýra fjórðu myndinni um The Grump,“ segir hann.
„Þetta var í fyrsta skipti sem ég var bara að leikstýra. Ég hef alltaf líka verið að framleiða eða skrifa eða eitthvað slíkt. Þetta var mjög þægilegt og ég gæti alveg hugsað mér að gera fjórðu myndina, hún yrði þá sú síðasta í röðinni,“ segir Mika að lokum.