Stéttarfélagið Efling hafnar lögmæti miðlunartillögu sem ríkissáttasemjari lagði fram í morgun og fordæmir vinnubrög hans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
„Tillagan var lögð fram með óeðlilegum flýti og án samráðs við Eflingu.“ segir í henni.
Í yfirlýsingu Eflingar er fullyrt að miðlunartillaga ríkissáttasemjara fari gegn öllum venjum í samskiptum aðila vinnumarkaðarins, þar sem tíðkist hafi að miðlunartillögur fari bil beggja.
„Hin svokallaða miðlunartillaga felur í sér að afstöðu annars aðilans er þröngvað upp á hinn. Tillagan er algjörlega samhljóða síðasta tilboði Samtaka atvinnulífsins. Ekkert tillit var tekið til sjónarmiða Eflingar í tillögunni. Efling fordæmir þessi vinnubrögð.“
Auk þess er fullyrt að fyrirkomulag ríkissáttasemjara sé ólýðræðislegt.
„Á blaðamannafundi í dag lét ríkissáttasemjari þess ógetið að til að miðlunartillögu sé hafnað skv. lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nægir ekki að henni sé hafnað af meirihluta greiddra atkvæða. Mótatkvæði þurfa auk þess að vera fjórðungur af öllum á kjörskrá. Þetta fyrirkomulag atkvæðagreiðslu er ólýðræðisleg og íþyngjandi, sem setur enn frekari spurningarmerki við það samráðsleysi sem embætti ríkissáttasemjara sýnir gagnvart Eflingu.“