Að minnsta kosti 500 hafa fundist látnir eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir suðausturhluta Tyrklands í nótt. Skjálftinn var 7,8 að stærð og fylgdu öflugir eftirskjálftar í kjölfarið. Upptökin voru skammt frá borginni Gaziantep, ekki langt frá landamærum Sýrlands.
Fuat Oktay, varaforseti Tyrklands, sagði á blaðamannafundi nú á áttunda tímanum í morgun að 284 hefðu fundist látnir og rúmlega 2.300 slasast. Þá hafa yfirvöld í Sýrlandi staðfest að minnst 250 séu látnir þar.
Minnst tíu borgir í Tyrklandi urðu fyrir áhrifum skjálftans: Gaziantep, Kahramanmaras, Hatay, Osmaniye, Adiyaman, Malatya, Sanliurfa, Adana, Diyarbakir og Kilis. Þá fannst hann einnig í Líbanon og á Kýpur.

Þjóðarleiðtogar víða um heim hafa vottað yfirvöldum í Tyrklandi og Sýrlandi samúð sína og boðið fram stuðning.
Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði á Twitter í morgun að hann hefði sent Tayyip Erdogan samúðarkveðjur og boðið stuðning. James Cleverly, utanríkisráðherra Bretlands, sagði einnig að Bretar voru tilbúnir að bjóða fram aðstoð sína.
