Sjúkratryggingar Íslands hafa undirritað samning um rekstur 40 rýma á Vífilsstöðum fyrir aldraða. Öllum starfsmönnum Landspítala á Vífilsstöðum verður boðin tilfærsla í starfi innan spítalans. Ný störf hjá Heilsuvernd Vífilsstöðum verða auglýst.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá SÍ en nýr rekstraraðili er Heilsuvernd Vífilsstaðir, dótturfélag Heilsuverndar sem rekur Heilsuvernd Hjúkrunarheimili á Akureyri og Heilsugæsluna í Urðarhvarfi.

Í tilkynningunni kemur fram að verkefnið hefjist í janúar en þá taki félagið við þeirri þjónustu sem veitt er á Vífilsstöðum og þrói hana áfram í samstarfi við Landspítala, Sjúkratryggingar og heimahjúkrun á höfuðborgarsvæðinu, meðal annars með áherslu á líknar- og bráðaþjónustu.

Með þessari breytingu er stefnt að því að efla og bæta þjónustu við aldraða. Landspítali mun halda áfram uppbyggingu öldrunarþjónustu á Landakoti.